Opið svæði með leikvelli / sparkvelli

Opið svæði með leikvelli / sparkvelli

Opið svæði með leikvelli og jafnvel sparkvello eða körfuboltakörfu. Ævintýralegur gróður og falleg lágmarkslýsing á göngustígum sem fara í gegnum svæðið.

Points

Það vantar leiksvæði fyrir yngri börn og afþreyingu fyrir eldri börnin í hverfinu. Göngustígur með lágmarkslýsingu í gegnum svæðið er aðalatriðið svo börn komist að skóla og þurfi ekki að ganga á umferðargötu (fornahvarf er ekki með gangstíg).

Það eru 200 metrar í næsta leikvöll - ekki er það of langt?!? VIð erum nú líka stödd í náttúruparadís þar sem æfintýrin bíða handan við hvert tré 😁

Að opna á aðgengi almennings að þessu svæði vekur hjá okkur ugg um hópamyndanir, slæma umgengni við umhverfið og ónæði, meðal annars af völdum vélknúinna ökutækja.

Tilvalin staður fyrir leikvöll fyrir börn á öllum aldri.

Brýnna en göngustígar á þessu opna svæði er einmitt göngustígar upp Fornahvarf. Mikill kostnaður er við göngustígagerð að opna svæðinu ásamt gríðarlegu jarðraski og töluverðum trjáfellingum. Minni friðhelgi íbúa nærliggjandi húsa. Þjófnaðir hafa verið tíðir í hverfinu og með göngustígum er aðgengi að baklóðum okkar auðveldað. Að opna á aðgengi almennings að þessu svæði vekur hjá okkur ugg um hópamyndanir, slæma umgengni við umhverfið og ónæði, meðal annars af völdum vélknúinna ökutækja.

Viðhald og vetrarþjónusta malarstíga á þessum stað yrði kostnaðarsöm. Malbikaðir og upplýstir göngustígar eru í næsta nágrenni sem tengja Dimmuhvarf og Melahvarf við Vatnsendaskóla og leiksvæði, því er óþarfi að leggja í kostnað við nýjan stíg sem nýtist fáum.

Mjög gott leiksvæði við Grundarhvarf og Brekkuhvarf er örstutt frá þessu svæði. Sjá kort hér: https://bit.ly/3bLqS1M

Fyrst og fremst þyrfti að huga að gönguleið og stígum um Fornahvarf þar sem hvergi er gert ráð fyrir gangandi vegfarendum sem er stórundarlegt í ljósi þess fjölda sem sækir útivist í nálægð við vatnið.

Þær gönguleiðir sem þegar eru til staðar að Vatnsendaskóla eru jafnlangar og gönguleið eftir nýjum stíg í gegnum þetta svæði frá Dimmuhvarfi yfir í Melahvarf og því ekki um neina hagræðingu að ræða. Prýðisgóð gönguleið liggur upp Dimmuhvarfið þar sem er stígur beint inn á Melahvarf og þaðan upp að skóla og leiksvæði.

Minni friðhelgi íbúa nærliggjandi húsa. Þjófnaðir hafa verið tíðir í hverfinu og með göngustígum er aðgengi að baklóðum okkar auðveldað. Nær væri að setja göngustíg um Fornahvarf þar sem gríðarleg umferð gangandi og hjólandi vegfarenda fer þar um alla daga allt árið um kring.

Engin þörf á leikvelli, örstutt í næsta leiksvæði rétt við Grundarhvarf.

Það vantar alls ekki leiksvæði í hverfið. Mjög góður leikvöllur á milli Grundarhvarfs og Brekkuhvarfs sem er rétt rúmlega 200m frá efstu húsum Dimmuhvarfs. Malbikaðir göngustígar alla leið.

Viðhald og vetrarþjónusta stíga á þessum stað yrði kostnaðarsöm. Malbikaðir og upplýstir göngustígar eru í næsta nágrenni sem tengja Dimmuhvarf og Melahvarf við Vatnsendaskóla og leiksvæði, því er óþarfi að leggja í kostnað við nýjan stíg sem nýtist fáum. Stígar um svæðið myndu nýtast örfáum sem geta hæglega stokkið yfir svæðið eða farið þær gönguleiðir sem eru til staðar nú þegar.

Sparkvöllur og/eða körfuboltavöllur er mjög óhagkvæmt. Það þyrfti stórtækar vinnuvélar og gríðarlegt rask. Það eru slíkir vellir við Vatnsendaskóla og stígar frá Dimmuhvarfi liggja alla leið. Þá er leikvöllur milli Grundar- og Brekkuhvarfs sem ekki er langt að sækja og upplýstir og malbikaðir stígar alla leið. Svo geta börn hoppað yfir þetta opna svæði án vandræða ef þau vilja stytta sér leið.

Mjög gott leiksvæði við Grundarhvarf og Brekkuhvarf er örstutt frá þessu svæði. Sjá mynd hér af leikvellinum: https://bit.ly/2NEr4rF

Þær gönguleiðir sem þegar eru til staðar að Vatnsendaskóla eru jafnlangar og gönguleið eftir nýjum stíg í gegnum þetta svæði frá Dimmuhvarfi yfir í Melahvarf og því ekki um neina hagræðingu að ræða. Prýðisgóð gönguleið liggur upp Dimmuhvarfið þar sem er stígur beint inn á Melahvarf og þaðan upp að skóla og leiksvæði.

Það vantar alls ekki leiksvæði í hverfið. Mjög góður og lítið notaður leikvöllur er á milli Grundarhvarfs og Brekkuhvarfs sem er rétt rúmlega 200m frá efstu húsum Dimmuhvarfs. Malbikaðir göngustígar alla leið.

Mikill kostnaður er við göngustígagerð að opna svæðinu ásamt gríðarlegu jarðraski og töluverðum trjáfellingum. Minni friðhelgi íbúa nærliggjandi húsa. Þjófnaðir hafa verið tíðir í hverfinu og með göngustígum er aðgengi að baklóðum okkar auðveldað. Að opna á aðgengi almennings að þessu svæði vekur hjá okkur ugg um hópamyndanir, slæma umgengni við umhverfið og ónæði, meðal annars af völdum vélknúinna ökutækja.

Þær gönguleiðir sem þegar eru til staðar að Vatnsendaskóla eru jafnlangar og gönguleið eftir nýjum stíg í gegnum þetta svæði frá Dimmuhvarfi yfir í Melahvarf og því ekki um neina hagræðingu að ræða. Mjög góð og upplýst gönguleið liggur upp Dimmuhvarfið þar sem er stígur beint inn á Melahvarf og þaðan upp að skóla og leiksvæði.

Fjölmörg útivistarsvæði eru í næsta nágrenni án þess að opna fyrir umferð almennings í gegnum þetta litla svæði. Einnig er mjög gott leiksvæði í næsta nágrenni á milli Grundarhvarfs og Brekkuhvarfs og liggja góðar stígatengingar þangað bæði frá Dimmuhvarfi og Melahvarfi.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information