
Jafna jarðveg á opna svæðinu fyrir aftan Dimmuhvarf 7a og 7b til að minnka fallhættu og flóðahættu vegna mikillar úrkoma á lóðir Dimmuhvarfs 7, 7a og 7b, og til að auðveldara verði að nýta svæðið undir leikvöll/útivist. Eins og svæðið er núna liggur brekka að þessum lóðum. Hægt væri að hafa brekku sem liggur í átt að vatninu án þess að skapa fallhættu á aðliggjandi lóðir.
Svæðið hallar mikið í átt að lóðum við Dimmuhvarf og hæðarmunur er það mikill að þyrfti að girða af þær lóðir til að skapa ekki hættu fyrir börn við leiksvæði ef útbúa á sleðabrekku, boltavelli eða annað. Það er einfaldlega ekkert hægt að jafna svæðið niður í hæð lóðanna fyrir neðan. Ég set spurningamerki við fullyrðingu um flóðahættu.
Minnka fallhættu og flóðhættu vegna mikilla úrkoma fyrir hús í Dimmuhvarfi sem eiga lóðir sem liggja að opna svæðinu.
Varla er hægt að jafna svæðið bara alveg niður í sömu hæð og Dimmuhvarf. Flóðahætta vegna mikilla úrkomu er langsótt.
Set spurningamerki við flóðahættu og fyrir utan að það þyrfti þá að jafna svæðið í sömu eða svipaða hæð og húsin í Dimmuhvarfi 7, sem augljóslega gengur ekki upp.
Svæðið er alls ekki stórt og við setjum stórt spurningamerki við að sleðabrekka komist hreinlega fyrir þarna. Það eru fjölmörg önnur svæði í hverfinu sem myndu henta betur en þetta tiltekna svæði. Þar sem svæðið hallar í átt að lóðum við Dimmuhvarf og hæðarmunur er mjög mikill þyrfti þá líka að girða af þær lóðir til að skapa ekki hættu fyrir börn við leiksvæði ef útbúa á sleðabrekku, boltavelli eða annað.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation