
Innsend hugmynd frá Halldóru Hauksdóttur: Setjum börnin í fyrsta sæti, aukið öryggi og gera leiksvæði fyrir börnin þar sem eina leiksvæðið er gatan og hefur skapast hætta oftar en einu sinni við þær aðstæður. Hver svarar fyrir það ef það kemur upp. Finnst það ekki boðlegt að í svona stóru hverfi sé ekki leiksvæði fyrir börn.
Mjög gott leiksvæði við Grundarhvarf og Brekkuhvarf er örstutt frá þessu svæði. Sjá mynd hér af leikvellinum: https://bit.ly/2NEr4rF
Í þessu hverfi er einmitt leiksvæði fyrir börn sem er í alla staði öruggt og flott svæði. Leikvöllurinn er staðsettur milli Grundarhvarfs og Brekkuhvarfs, malbikaðir og upplýstir stígar alla leið.
Mjög gott leiksvæði við Grundarhvarf og Brekkuhvarf er örstutt frá þessu svæði. Sjá kort hér: https://bit.ly/3bLqS1M
Þetta er ekki rétt. Það eru mörg önnur svæði í hverfinu sem geta nýst til útivistar án þess að opna á aðgengi almennings að þessu tiltekna svæði. Einnig er mjög góður leikvöllur stutt frá eða á milli Grundarhvarfs og Brekkuhvarfs. Um það bil 90m frá Grundarhvarfi og rétt rúmlega 200m frá efstu húsum Dimmuhvarfs. Malbikaðir göngustígar alla leið.
Það er leikvöllur staðsettur um það bil 100 metrum frá Grundarhvarfi. Sé ekki að það sé þörf á öðrum á sama svæði. Örstutt úr öllum áttum frá neðri Hvörfum.
Það er örstutt í leikvöll sem hægt er að ganga til á malbikuðum stígum og svo er ekki hægt að setja leikvelli við hverja götu heldur. Fólk og börn hafa fætur til að labba með!
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation