Sveit í borg

Sveit í borg

Opið svæði sem nýtist íbúum nærliggjandi húsa sem hafa aðgang að því í gegnum eigin garða en ekki verða gerðir sérstakir göngustígar inn á svæðið. Þarna má planta trjám og byggja upp skjól án þess að skipuleggja svæðið sérstaklega að öðru leyti. Íbúar nærliggjandi húsa gætu tekið að sér að fóstra þennan blett og halda honum snyrtilegum. Í anda hugmyndafræðinnar um „sveit í borg“ má leyfa hrossum að vera á afmörkuðu svæði til beitar en þau eru nágrönnum bæði til ánægju og yndisauka.

Points

Þetta skapar róandi, kyrrlátt og asalaust andrúmsloft sem við teljum eftirsóknarvert og ástæða þess að við veljum að búa í „sveit í borg“.

Mikill kostnaður er við göngustígagerð að svæðinu ásamt gríðarlegu jarðraski og töluverðum trjáfellingum. Mörg brýnni verkefni eru í neðri Hvörfum sem þarfnast skoðunar og kalla á úrbætur. Eitt af þeim er t.d. Fornahvarf sem er án göngustíga eða gangstétta sem er stórundarlegt í ljósi þess hvað vatnið hefur mikið aðdráttarafl og þann gríðarlega fjölda akandi, gangandi og hjólandi fólks sem þar fer um daglega.

Það eru mörg önnur svæði í hverfinu sem geta nýst til útivistar án þess að opna á aðgengi almennings að þessu tiltekna svæði. Einnig er mjög góður leikvöllur stutt frá eða á milli Grundarhvarfs og Brekkuhvarfs (sjá mynd).

Áratugalöng hefð er fyrir því að þessi blettur sé nýttur af íbúum nærliggjandi húsa og hefur verið sátt meðal íbúa um notkun þessa friðsæla svæðis við baklóðir okkar. Íbúar hafa haldið svæðinu snyrtilegu, plantað trjám og eins hefur hestum verið beitt á afmörkuðum hluta.

Fjölmörg útivistarsvæði eru í næsta nágrenni án þess að opna fyrir umferð almennings í gegnum þetta litla svæði. Einnig er mjög gott leiksvæði í næsta nágrenni á milli Grundarhvarfs og Brekkuhvarfs og liggja góðar stígatengingar þangað bæði frá Dimmuhvarfi og Melahvarfi.

Svæðið er vel hirt og hafa íbúar nærliggjandi húsa lagt mikla vinnu í að halda því snyrtilegu. Við viljum búa í sátt og samlyndi við menn og dýr, enda völdum við að flytja í "sveit í borg".

Fjölmörg útivistarsvæði eru í næsta nágrenni, enda búum við Vatnsendabúar í mikilli náttúruparadís. Það er því alger óþarfi að opna fyrir umferð almennings í gegnum þetta litla svæði. Það bíður einfaldlega hættunni heim á svo margan hátt. Mjög gott leiksvæði er í næsta nágrenni á milli Grundarhvarfs og Brekkuhvarfs og liggja góðar stígatengingar þangað bæði frá Dimmuhvarfi og Melahvarfi.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information