
Bæta aðgengi að svæðinu og rækta það svo allir íbúar hverfisins geti notið þess. Hafa öryggi og þarfir barna fyrir leiksvæði og göngustiga í forgrunni. Ræktun þessa svæðis og lagning göngustíga eru á deiliskipulagi sem ætti að standa við.
Hafa svæðið aðgengilegt fyrir alla íbúa svæðisins.
Svæðið er vel aðgengilegt en það er ekki skipulagt. Fjölmörg útivistarsvæði eru í næsta nágrenni án þess að opna fyrir umferð almennings í gegnum þetta litla svæði. Einnig er mjög gott leiksvæði í næsta nágrenni á milli Grundarhvarfs og Brekkuhvarfs og liggja góðar stígatengingar þangað bæði frá Dimmuhvarfi og Melahvarfi.
Svæðið er ekki óaðgengilegt né ógnar það öryggi eins né neins. Ræktun, umhirða og notkun hefur verið í góðu samstarfi og samlyndi við íbúa í áraraðir.
Fjölmörg útivistarsvæði eru í næsta nágrenni. Einnig er mjög gott leiksvæði í næsta nágrenni á milli Grundarhvarfs og Brekkuhvarfs og liggja góðar stígatengingar þangað bæði frá Dimmuhvarfi og Melahvarfi. Svæðið er ekki óaðgengilegt né ógnar það öryggi eins né neins. Ræktun, umhirða og notkun hefur verið í góðu samstarfi og samlyndi við íbúa í áraraðir.
Aðgengið er hið fínasta og engum bannað að fara um svæðið. Öryggi barna er með engu móti ógnað nema síður sé. Íbúar hafa haldið svæðinu snyrtilegu, ræktað upp og hugsað um í sátt og samlyndi við aðra íbúa. Fjölmörg útivistarsvæði eru í næsta nágrenni án þess að opna fyrir umferð almennings í gegnum þetta litla svæði. Einnig er mjög gott leiksvæði í næsta nágrenni á milli Grundarhvarfs og Brekkuhvarfs og liggja góðar stígatengingar þangað bæði frá Dimmuhvarfi og Melahvarfi.
Nóg af náttúru til að njóta í umhverfinu, engin ástæða til að skemma þetta smásvæði með dóti og drasli.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation