
Vil styðja hugmyndina um að hreinsa lækinn en vil einnig að settur verði í frárennslið við brúna fiskistigi. Fyrsta skrefið þarf að vera hreinsun á frárennsli þar sem mengun frá gatnakerfinu rennur beint í lækinn. Hægt er að gera siturtjarnir með einföldum hætti þar sem rennur inn í lækinn. Til að hjálpa til við hreinsunina þarf að planta tjarnarstör, og öðrum vatnaplöntum og jafnvel dúnkólfi. Þegar hreinsun er farin að virka koma þarf að sleppa hornsílum, urriða og bleikju í lækinn.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation